Ég má til með að deila með ykkur hversu ánægð ég er með nýju acryl neglurnar mínar.
Í vikunni ákvað ég að gerast djörf og fór á Makeover í þeim tilgangi að fá mér langþráðar stiletto neglur sem Rihanna hefur gert verulega vinsælar vestanhafs.
Ég fæ mér vanalega ekki mjög áberandi neglur. Iðulega fæ ég mér natural acryl eða gelneglur en ég var einmitt mjög ánægð með þessar hér sem ég fékk mér fyrir jólin. Í þetta sinn langaði mig að breyta til, prófa eitthvað öðruvísi og meira áberandi og er mjög sátt með útkomuna.
Ég ákvað síðan að taka þetta alla leið með því að fá mér pastel bleikt gelnaglalakk. Gelnagglalökk eru mjög vinsæl í dag en það lakk sem ég valdi á að endast mér í 3-4 vikur! Það finnst mér frábært þar sem naglalökk haldast yfirleitt ekki lengur en í tvo daga á mínum nöglum þrátt fyrir yfir og undirlökkun.
Ég er mjög ánægð með stiletto neglurnar mínar og er spennt að prófa meira í þessum stíl.
Hér er svo myndasafn með allskonar útgáfum af stiletto nöglum Rihönnu.
Fanney hefur skrifað á Pjattið frá 2012. Hún skrifar mest um andlegu hliðina og lífsstílstengd mál. Fanney er viðskiptafræðingur og starfar sem slíkur hjá Markhóli markþjálfun. Hún býr í 105 Rvk ásamt sambýlismanni sínum Óskari Arnarsyni. Fanney er með sól í fiskum en er rísandi bogmaður.