Söngkonana Adele eignaðist son sinn Angelo í október á síðasta ári og hefur lítið komið fram opinberlega eftir fæðingu hans.
Söngkonan bað stallsystur sína Kelly Clarkson á Grammy verðlaunahátíðinni í febrúar að eignast ekki börn strax, hún væri bara í “babyland” og hugsaði ekki um neitt annað en barnið á meðan og ferillinn færi á bið á meðan sonurinn væri ennþá svona lítill.
Kelly sem er nýgift hefur sagt í viðtölum nýlega að hana langi mjög mikið í barn en hún og eiginmaður hennar njóta hveitibrauðsdaganna í botn um þessar mundir og eru ansi dugleg að reyna að búa til barn en ferill Kelly hefur farið hratt upp á við aftur eftir að hann fór í smá lægð um tíma.
Ég bíð spennt eftir endurkomu Adele í tónlistarheiminn og efa það ekki að hún komi tvíelfd til baka eftir smá pásu í “mömmulandi”.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig