Hin nýbakaða móðir og söngkona Adele lét Chris Brown aldeilis fá að heyra það á Grammy verðlaunahátíðinni á sunnudagskvöldið.
Chris var heldur betur skúffaður þegar Frank Ocean hlaut verðlaun í sama flokki og Chris var tilnenfdur í og hafði ekki einu sinni fyrir því að standa upp… Hann rétt fékk hendurnar til að gefa honum nokkur klöpp fyrir viðurkenninguna.
Frank og Chris lentu í útistöðum fyrir þremur vikum síðan þegar þeir fóru í slagsmál vegna bílastæðis og var lögreglan kölluð til að róa kappana niður.
Þegar Frank var búinn að taka við verðlaunum sínum þá gekk Adele að Chris og sagði honum til syndanna en hún horfði fyrirlitningaraugum á manninn þegar Frank tók við verðlaunum sínum. Ekki er vitað hvað fór þeirra á milli en Chris reyndi ítrekað að taka í hönd Adele á meðan hún skammaði hann. Hún vildi ekki sjá það og hélt áfram að skamma hann fyrir framan alla í salnum eins og lítinn krakka.
Chris skammaðist sín frekar mikið eftir á en maðurinn er greinilega ákaflega tapsár.
Adele lét taka mynd af sér með Chris og Frank í lok hátíðarinnar en hún vildi vera viss um að hún fengi líka mynd með Frank þegar hann var búinn að fá verðlaunin sín.
Frekar skondin uppákoma, kannski er Chris ekki búinn að þroskast jafn mikið og Rihanna heldur.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig