Sue Ellen í Dallas var ansi margt til lista lagt… og að sama skapi var sitthvað sem hún kunni ekki. Eins og til dæmis að fara með áfengi og gefa skít í kúkalabbann hann JR. En eitt kunni hún þó. Það var að segja mönnum upp.
Einu sinni átti ég í mestu vandræðum með að segja upp strák. Hafði verið að deita hann í einhvern tíma og komst svo að því að við áttum akkúrat enga samleið. En hann skildi þetta ekki. Mjög óþægilegt. Eflaust svipað og að vera atvinnuveitandi sem neyðist til að reka starfsmann en viðkomandi heldur bara áfram að mæta. Eins og Bambi á svipinn.
Ég vissi semsagt ekkert hvernig ég átti að fara að þessu. Hann tók ekki orðlausum ábendingum. Skildi bara ekki þetta með að ég svaraði ekki símanum og þannig. Þá bara kom hann. Tómt vesen.
Svo var það eitt kvöldið að ég sat fyrir framan sjónvarpið og horfði á Dallas. Birtist þar ekki Sue Ellen úti að borða með viðhaldinu sínu honum Cliff Barnes. Hún var alvarleg á svipinn meðan Cliff var glaður en Cliff hætti svo að vera glaður þegar hún tók til máls. Það var reyndar engin stórkostleg ræða. Bara eitthvað blátt áfram og einfalt um að hún sæi ekki fram á að framtíð þeirra saman yrði björt. Þau ættu ekki samleið í þessu lífi. Hún vildi fara aðra leið en hann og svona. Cliff gat ekkert sagt. Þurfti bara að taka þessu.
Ég horfði alveg agndofa og einstaklega hrifin af henni Sue. Hún gerði þetta með svo miklum elegans og þokka að ég ákvað að rifja upp nánast orðrétt það sem hún sagði og nota það svo á drenginn. Það leið ekki nema hálftími þar til hann hringdi dyrabjöllunni. Ég bauð honum inn. Hann settist á stól. Ég fór með Sue Ellen ræðuna og drengurinn kvaddi skömmu síðar, áfallalaust.
Síðan þá hef ég sagt vinkonum í samskonar vanda frá þessari aðferð og hún hefur undantekningarlaust dugað. Að segja upp að hætti Sue Ellen er skotheld aðferð. Vildi að ég hefði fundið þessa senu á Youtube en það gekk ekki.
Hér er hinsvegar önnur sem sýnir svala takta hjá fyrrum Miss Texas 1976. Hún kunni tökin á þeim öllum -Nema JR að sjálfssögðu.
Bella Baldurs hefur mikinn áhuga á persónulegum þroska, samskiptum, samböndum, ástarmálum, deitmálum og kynlífi.
Hún byrjar hvern dag á núvitundaræfingu áður en hún rúllar sér sígarettu og hellir upp á tvöfaldan espresso.