Claudia Schiffer, Naomi Campbell & Eva Herzigova, allt ofurfyrirsætur frá 90’s árunum, hafa verið hóaðar saman í comeback vegna nýrrar auglýsingar frá Dolce & Cabbana.
Nokkrir hugguglegir súkkulaðistrákar taka þátt í þessu með stelpunum en herferðin miðar að því að auglýsa nýjan og góðan ilm frá D&G, Anthology.
Í bakgrunni hljómar lagið Freedom með George Michael og minnir okkur þannig enn meira á þetta tímabil sem ég hreinlega eeelska. Held ég sé því búin að finna uppáhalds ilminn minn. D&G Anthology Fragrances.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.