Já dömur mínar það þýðir ekkert að leggjast í crocks og flís þó þið séuð orðnar mömmur, maður getur alltaf verið töffari óháð aldri og barnatölu!
Hollywood skvísurnar eru að sjálfsögðu með það á hreinu og dressa sig töffaralega en þó án þess að fara yfir strikið.
Margar mömmurnar eiga fleiri en eitt barn og við vitum það alveg að þær eru með stílista á hverju strái til að hjálpa sér að velja fatnað en það er einnig hægt að fá innblástur á mörgum vefsíðum (aðallega þó Pjattinu) tískubloggum og smá “gúggl” getur alltaf hjálpað til.
Skoðaðu þessi glæsikvendi og ofurtöffara hér að neðan…
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig