Það er fátt leiðinlegra en að borða yfir sig og upplifa uppþembu, þreytu og slen. Eins yndisleg og jólin eru þá eru þau bara nokkrir dagar og svo tekur hversdagsleg rútínan við.
Í desember eiga margir það til að henda heilbrigðu venjunum sínum útum gluggann og setja sjálfa sig í aftasta sæti. Við hjá HIITFIT viljum hvetja fólk til þess að gera það ekki og ætlum því að halda ókeypis jólaáskorun sem byrjar núna!
Þátttakendur fá stuttar heimaæfingar, hollar uppskriftir, hugaræfingu og mikla fræðslu og hvatningu yfir tímabilið. Þannig við hvetjum þig til þess að taka þátt og setja heilsuna þína í forgang yfir hátíðirnar.
Hafðu þessi frábæru jólaráð einnig í huga yfir hátíðirnar og skoraðu á sjálfa þig að fylgja einhverjum þeirra.
Sara Barðdal Þórisdóttir er móðir, ÍAK einkaþjálfari, heilsumarkþjálfi og stofnandi hiitfit.is. Hún hjálpar konum að verða heilsuhraustari og hamingjusamari í gegnum námskeið og þjálfanir á vegum hiitfit.is
1. Ekki kúfylla diskinn eða narta inn á milli!
Þegar þú ert í veislu, ekki byrja á því að narta í allt, því þá er erfitt að átta sig á því hvað þú ert að innbyrgða mikið. Fókusaðu á félagsskapinn og njóttu þín. Þegar eitthvað lítur sérstaklega girnilega út, fáðu þér. Settu allt það á diskinn sem þig langar að smakka, en hafðu skammtastærðirnar í huga.
Við þurfum ekki að gúffa í okkur mörgum diskum af mat af því hann smakkast vel. Reynum frekar að njóta hvers bita og virkilega upplifa matinn í núinu. Þannig finnur þú fyrir seddunni áður en þú hefur borðað yfir þig. Það er miklu heilbrigðara fyrir þig og þú munt njóta veislunnar enn betur eftir á.
2. Er þetta raunverulega þess virði?
Gott er að spyrja sjálfa sig þessarar spurningar: „Er þetta virkilega þess virði að setja allan sykurinn, hvíta hveitið og smjörlíkið inn fyrir varirnar?“ Og veltu fyrir þér hvort það verði líka þess virði eftir á þegar þú upplifir mögulega orkuleysi, uppþembu og magaverk?
Oftar en ekki, er svarið nei. En ef svarið er já, veldu þá bitann vel, hugsaðu um skammtastærðina, borðaðu hægt og njóttu bragðsins til enda. Allsstaðar þar sem þú kemur mun eitthvað gotterí vera í boði, veldu það vel sem þú vilt gæða þér á með góðri samvisku, en þú þarft ekki að úða í þig öllu sem í boði er, hvar og hvenær sem er. Það er ekki þess virði.
3. Hreyfðu þig á hverjum degi!
Hreyfðu líkamann daglega yfir hátíðarnar! Í alvöru talað, þér mun líða svo miklu betur! Ég skora á þig að setja þetta í forgang og ef þig vantar hugmyndir af snöggum heimaæfingum, Smelltu hérhttps://www.sarabarddal.is/Jolaaskorun-2019 til þess að vera með í jólaáskorun.
4. Fylgstu með hvaða áhrif maturinn hefur á þig!
Taktu eftir því hvernig þér líður eftir hverja máltíð, hvernig eftirrétturinn fer í magann á þér og hvaða fæðutegundir eru í hverri máltíð. Sumt hefur nefnilega alls ekki góð áhrif á okkur og ættum við því að reyna að forðast þá hluti eins og heitan eldinn. Með því að vera meðvitaðri um áhrif fæðunnar getum við tekið upplýstari og betri ákvarðanir fyrir líkama okkar – og liðið betur fyrir vikið.
5. Drekktu vatn eins og þér sé borgað fyrir það!
Taktu þetta ráð alvarlega! Vertu ótrúlega dugleg að drekka vatn, vertu ávallt með glas við höndina eða flotta vatnsbrúsann þinn uppi við. Jólamaturinn er oftar en ekki ótrúlega saltur og vel sykraður og þá þarftu aldeilis að setja vatnsdrykkjuna í fimmta gír. Þetta ráð mun hjálpa líkama þínum að vinna og hreinsa út allan þennan jólamat og þér mun líða svo miklu betur.
6. Borðaðu eitthvað grænt daglega!
Ekki gleyma þessu góða og græna í öllum hátíðarmatnum. Grænmetið gefur þér næringuna og orkuna sem þú þarft á að halda – þó það séu jól – og hjálpar við að hafa hemil á sykurpúkanum. Fáðu þér grænt boost eða salat inn á milli og það mun einnig hjálpa þér að borða ekki yfir þig í veislunni.
7. Slepptu eða takmarkaðu gosdrykkju!
Það er slæmt að borða sykurinn en það er hinsvegar ekkert verra en að DREKKA sykurinn! Gosdrykkir er stútfullir af sykri – þar sem bæði malt og appelsínu tróna á toppnum yfir sykurmestu gostegundirnar – sem fer beint inní kerfið þitt með tilheyrandi blóðsykurskoti og slatta af tómum kalóríum sem gera ekkert fyrir þig.
Gosdrykkja er einmitt einn þeirra hluta sem ég myndi reyna alveg sleppa, en ef þú vilt ekki taka þetta hátíðarráð alla leið veldu þá að fá þér minna magn en vanalega. Kannski geturðu látið eitt glas af malti og appelsíni duga í gegnum veisluna og fáðu þér svo nóg af vatni og/eða sódavatni með. Hafðu það sem reglu að drekka alltaf eitt vatnsglas fyrir máltíð.
8. Hafðu framtíðar markmiðin þín í huga!
Hugsaðu reglulega um markmiðin þín og hvert þú vilt stefna. Hefurðu verið dugleg að æfa allt árið eða breytt um lífsstíl? Langar þig að vera heilbrigðari og líða betur? Hvar sem þú ert stödd á þessu ferðalagi hafðu í huga hver heilsumarkmiðin þín eru. Jólin eru rétt byrjuð þegar þau eru svo búin og þá er allt í einu komið nýtt ár. Ekki skemma fyrir framtíðar-þér og gefa þér afslátt með:
„Ég næ þessu af mér í janúar“ hugsun – hvernig hefur álíka hugsun þjónað þér hingað til? Taktu frekar ákvörðun um að mæta nýja árinu heilbrigðari en áður, taktu ákvörðun sem gerir sjálfri þér gott og kemur þér lengra.
Hafðu þessi örfáu ráð í huga yfir hátíðirnar, vonandi hefur þessi stutta lesning gefið þér fleiri hugmyndir og hvatningu svo þú munir eftir heilsunni yfir hátíðarnar og njótir þeirra í góðu jafnvægi! Við vonumst til að sjá þig í jólaáskorun! Við munum gera okkar besta til að hvetja þig áfram og gefa þér innblástur til þess að segja JÁ við heilsusamlegri þér.
Heilsukveðja
Sara Barðdal
ÍAK einkaþjálfari og heilsumarkþjálfistofnandi www.hiitfit.is
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.