Leik-, söng- og partígellan Linsay Lohan hannaði og gaf út línu af leggings árið 2008. Nú hefur hún hannað heila fatalínu og er í óðaönn að kynna línuna sem heitir 6126…
Þessi nýja fatalína hennar samanstendur af 280 flíkum sem er ótrúlega mikið. Í henni eru til dæmis hettupeysur, samfestingar, mini-kjólar, peysur og stígvél sem ná upp á læri.
Hún segir á síðunni sinni að innblásturinn hafi verið Marilyn Monroe og hennar tímalausi glamúr en ég sé reyndar enga tenginu þar á milli, mér finnst þetta bara vera týpísk L.A. partý föt.
Hér fyrir neðan er svo smá sýnishorn og surprise, surprise, Lindsay Lohan er sjálf fyrirsæta á sumum myndanna.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.