Leikkarinn Matthew McConaughey ákvað um helgina að skella sér á ströndina með fjölskyldunni sinni en það var ansi svalt þann daginn.
Levi (5) sonur Matthew og Camillu eiginkonu hans var klæddur í peysu frá 66°norður en við sem búum á Íslandi getum öll verið sammála um það að fatnaður frá merkinu heldur á manni hita þegar það er kalt úti. Matthew er einnig klæddur í jakka frá 66°en jakkinn heitir Eldborg. Svei mér þá ef að Levi litli er ekki líka með húfu frá VÍS!
Fjölskyldan virtist skemmta sér vel þrátt fyrir kuldann en þau voru öll á ströndinni að moka ásamt hundunum sínum sem hlupu í sjóinn eins og enginn væri morgundagurinn.
Matthew var í stígvélum svo hann gæti vaðið í sjóinn með hundunum en yngstu börnin sátu með mömmu sinni að moka á meðan Levi fór annað slagið með pabba sínum að leika með hundunum.
Glæsileg fjölskylda sem notar íslenska framleiðslu til að orna sér og gera daginn á ströndinni betri!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig