Ertu með smá ‘sammara’ eftir páskaeggja og kjötát helgarinnar? Fékkstu málsháttinn ‘Mjór er mikils vísir’? eða þarftu einfaldlega að koma blóðinu á smá hreyfingu?
Þá eigum við eitthvað sameiginlegt. Við Vala erum reyndar búnar að skrá okkur á svakalegt bikiní-áskorunar námskeið sem byrjar eftir helgi (þýðir ekkert að vera með páskabumbu í sumar) en ég ætla líka að skella mér í tíma á morgun – þar sem það er ókeypis og allt sem er ókeypis er mjög skemmtilegt að okkar mati.
Þetta er líka prýðileg leið til að koma sér í gang og fara svo í pottinn og gufubað á eftir.
Fríir prufutímar í Hreyfingu dagana 11. – 13. apríl
11. apríl kl 16:30 – Pilates fyrir byrjendur – Leiðbeinandi: Helga Lind
11. apríl kl 17:30 – Hot Fitness – Leiðbeinandi: Helga Lind
11. apríl kl 18:30 – Fanta gott form – Leiðbeinandi: Mýa og Stefán
12. apríl kl 07:15 – Club Fit VIP – Leiðbeinandi: Jón Oddur
12. apríl kl 12:10 – Hot Fitness – Leiðbeinandi: Anna Eiríks
12. apríl kl 16:30 – Hot Yoga – Leiðbeinandi: Elva Rut
13. apríl kl 18:15 – Club Fit – Leiðbeinandi: Stefán
Sjáumst!
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.