Við teljum niður til áramóta út desember með stuttum hugleiðingum sem bæta lífið og tilveruna. Út frá þessum hugleiðingum getur þú til dæmis sett þér markmið eða nýjar áherslur fyrir nýja árið framundan.
Það eru ekki vandamálin sem gera þig að því sem þú ert heldur hvernig þú bregst við þeim og leysir þau.
Vandamál hverfa ekki nema þú takir til þinna ráða. Gerðu það sem þú getur til að leysa vandamálin þín, á þeim tíma sem virkar best fyrir þig og sættu þig við það sem er búið og gert. Þetta snýst aðeins um að taka lítil skref í réttu áttina.
Eitt skref er kannski bara eitt skref en smátt og smátt verður meterinn að hundrað metrum, svo að kílómeter og áður en þú veist af ertu komin um langan veg í að leysa vandamál sem áður virtust alveg yfirþyrmandi.
Þú getur þetta stelpa! Leystu vandamálin.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.