Nutribullet er ein snilldin á heimili mínu en ég fékk þessa græju í jólagjöf og hef notað hana óspart síðan. Ég hef verið að prófa mig áfram með allskonar boozt uppskriftir, sumar heppnast betur en aðrar og mig langar að deila einni af þessari vel heppnuðu með þér!
Ég á alltaf til hráefni í þessa uppskrift en að mínu mati þá klikkar þessi græni boozt aldrei 🙂
- Lúka af spínati
- 1 grænt epli
- Mynta
- 1/2 appelsína (val)
- 2-3 cm engifer rót
- Floridana Heilsusafi
- Klakar
Magn af spínati og myntu fer bara eftir skapi. Einnig hef ég stundum sett Spirulina duft eða annað skemmtilegt útí fyrir smá auka kraft.
Njóttu vel 🙂
Krabbastelpan Eva Rós er fædd árið 1989, á tvö börn og góðan mann. Eva er mikill áhugamaður um hverskyns gamanmál en einnig uppeldi, ferðalög, heilsu, líkamsrækt, vín, matreiðslu, veisluhöld, kokteilagerð og góða þjónustu. Mottó Evu í lífinu er einfalt: Hver er sinnar gæfu smiður