Ég var að koma heim frá Malmö á sunnudaginn og sá á flugvellinum í Kaupmannahöfn stelpu sem ég tók myndir af í sumar.
Ég var eiginlega búin að gleyma þessum myndum en datt í hug að deila þeim með ykkur núna. Ég vann nokkrar þeirra aftur og ákvað að hafa allar svarthvítar. Sigga mín / Make up by Kjerulf farðaði stelpurnar en ég elska blómin sem hún setti framan í þær, fáránlega töff!
Fyndið… í sumar var ég ekkert ástfangin af þessum myndum, en eitthvernveginn þegar ég er búin að fara frá þeim og koma aftur þá f ég einhverja aðra sýn og núna er ég sjúklega ánægð með þær!
Módelin heita Helga Guðmunds & Salka Ósk.
Stjórnmálafræðingurinn Emilía Kristín er 25 ára stelpa, fædd og uppalin á Seltjarnarnesi. Hún er í sambúð og móðir tveggja dásamlegra stelpna. Emilía hefur brennandi áhuga á ljósmyndun, hönnun, tísku og barnatísku og elskar allt sem glitrar. Hún er með útlandasýki á háu stigi og er helst með 2-3 utanlandsferðir í kortunum. Uppáhalds staðurinn hennar í Reykjavík er Te&kaffi í Austurstræti og hún elskar Pippó! ✌