Fyrrum glamúrmódelið Katie Price er hrædd um að missa barnið sem hún gengur með eftir að hafa komist að framhjáhaldi eiginmannsins.
Katie, sem nú á von á sínu fimmta barni og öðru með eiginmanninum og stripparanum Kieran Hayler (26), ku vera með gríðarlega háan blóðþrýsting og illa á sig komin en hún er nú gengin sex mánuði með barn þeirra.
Viðhald eiginmannsins er (fyrrverandi) besta vinkona Katie, Jane Pountney, en sambandið hefur staðið í marga mánuði eða eins og vinir Katie orða það “Full blown sexual affair”.
Katie var hætt komin þegar hún gekk með fyrra barn þeirra hjóna en hún átti dreng tvo mánuði fyrir tímann og voru bæði móðir og barn í nokkrar vikur að jafna sig eftir að tekið hafði verið á móti honum með bráða-keisaraskurði.
Katie á fyrir Princess Tiaamii Crystal Esther Andre, Harvey Price og Junior Savva Andreas Andre en sá yngsti er Jett Riviera Hayler.
Kieran er þriðji eiginmaður ofurskinkunnar en hún var áður gift söngvaranum Peter Andre og bardagamanninum Alex Reid.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.