Barnaverndarstofa í Los Angeles hefur hafið rannsókn á mynd sem birtist á samfélagsmiðlunum af 13 ára dóttur Will & Jada Pinkett Smith, Willow, uppi í rúmi með leikaranum Moises Arias, 20 ára.
„Rannsóknin hófst formlega í síðustu viku og málið er litið alvarlegum augum af deildinni,“ sagði heimildarmaður við RadarOnline.
„Will og Jada hafa verið mjög samvinnuþýð. Að sjálfsögðu eru þau ekki ánægð með þetta en þau skilja það að það þarf að rannsaka málið og að þau séu hluti af rannsókninni.“
Fyrr í þessum mánuði spruttu upp miklar deilur á netinu eftir að hinn tvítugi Arias birti mynd af sjálfum sér uppi í rúmi með hinni 13 ára gömlu Willow á samfélagsmiðlunum.
Á myndinni er Willow klædd í gallabuxur og bol á meðan Arias er ber að ofan og neðri helmingur hans undir rúmfötunum en deilt er um hvort myndbirtingin sé siðleg, og sitthvað fleira.
Arias, sem er best þekktur fyrir hlutverk sitt í Hannah Montana, tók myndina út stuttu eftir að hann setti hana inn.
Garðar Örn Hinriksson fæddist sama ár og Jim Morrison og Louis Armstrong hurfu yfir móðuna miklu og getið nú. Garðar er ókrýndur slúðurkóngur Íslands en í rúm fjögur ár slúðraði hann eins og engin væri morgundagurinn á Gossip. Garðar kann þó fleira fyrir sér en að slúðra en hann er útskrifaður leiðsögumaður frá Ferðamálaskóla Íslands og giftur tveggja barna faðir sem stefnir á barn númer þrjú. Hann rekur einnig vefinn enskiboltinn.is og hefur starfað sem knattspyrnudómari í efstu deildum Íslands í rúm 20 ár. Töff? Já.