Hér koma nokkrar fallegar snyrtibuddur úr ýmsum áttum…
…Mér hefur alltaf þótt erfitt að finna flottar og góðar snyrtibuddur hér heima en þessar fyrir neðan er hægt að kaupa á netinu.
Sumar koma frá þekktum hönnuðum og gætu mögulega einnig notast sem litla partý-handtöskur enda kosta þær margar skildinginn.
Þessi bleika frá Mulberry er algjör draumur… eða er kannski of mikið að borga rúmar 50.000 krónur fyrir snyrtibuddu!?! 2007?
_____________________________________________________________________________
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.